þar sem Draumar verða að Veruleika

"That's just me and that's how a players got to be-- Stay kicking game with a capital G"

19.06.2008 18:11:10 / gisli

Dagur Kvennaknattspyrnu á laugardaginn

Jæja, ég ætla að vona að ég sé ekki sá eini sem langar að fara á leikinn á laugardaginn þegar Íslenska landsliðið mætir Slóveníu og á með sigri ennþá möguleika á að vera fyrsta íslenska A-landsliðið til að komast á stórmót í fótbolta.  Ég hef ekki bloggað hérna í frekar langan tíman en ég ætla að nota bloggið núna einfaldlega til að hvetja fólk til að mæta á leikinn.  Ég held og vona að þetta verði ein allsherjar hátíð og íslenska kvennalandsliðið hefur sýnt það áður að það kann að skemmta áhorfendum.

Hver ætlar að mæta á leikinn?


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 21:15:18 / gisli

Kveðja til magga



http://www.youtube.com/watch?v=G9SEvlMdFuI
<object width="425" height="355"><param name="movie"
value="http://www.youtube.com/v/G9SEvlMdFuI&hl=en"></param><param
name="wmode" value="transparent"></param><embed
src="http://www.youtube.com/v/G9SEvlMdFuI&hl=en"
type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" width="425"
height="355"></embed></object>

p.s. ég editaði þetta í símanum mínum, hversu cool er það?

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2008 17:50:47 / gisli

Gísli að elda

Þar sem ég eyði oft nokkuð löngum stundum fyrir framan tölvuna þá skoða ég ótrúlegustu hluti á netinu.  Eitt af því er síða sem er kennd við marga gamla vini og kunningja og fólk getur nálgast á www.rug.braud.in .  Á þessari síðu skrifaði Atli nokkur blogg um hæfni sína í eldhúsinu.  ég og atli eigum það sameiginlegt þessa dagana að foreldar okkar hafa yfirgefið okkur fyrir betra líf utan landssteinana og þá þarf maður víst að fara að elda ofaní sig sjálfur.  Atli syndi myndir af afrekum sínum og ég viðurkenni það fúslega að ég hefði alveg vilja smakka þennan kjúkling sem meistarinn mixaði.  ég hins vegar vill meina að ég hafi toppað Atla um daginn þegar ég eldaði mér Lambafille með salati, sósu og skolaði því niður með góðu rauðvínsglasi.

 
Þessa útkomu fékk ég með því að :
Redda mér þessu kjöti; Lambafille með fitu


ég skar í fituna, kryddaði og setti lauk inná milli



Svo skellti ég kjötina á pönnuna, fyrst á fituna og svo leyfði ég því að malla á litlum hita í svoítinn tíma



Maður verður að hafa eitthvað smá meðlæti og þar sem ég hafði ekki tíma til að mixa sæta kartöflu sem hefði verið draumameðlætið þá bjó ég mér til salat úr rucola og spínati, good shit



Svo í eftirmat var Camenbert, bakaðir í ofni í svona 20 min.  Gerist ekki betra :D


Svo er það spurningin, hver getur toppað mig?

Sorry með léleg gæði á myndunum en ég setti þær inní "myndasöfn" hérna til vinstri ásamt öðru "random stöff" albumi... tjekkit

Kveðja
Gísli


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 02:34:41 / gisli

Myndir frá Danmörku

http://www.flickr.com/photos/bigsmooth/
Þetta eru nokkrar útvaldar myndir frá köben
Svo setti ég myndirnar sem ég hef tekið á síman minn síðan ég fékk hann inná myndasíðuna hérna á blogginu, farið í myndasöfn uppi vinstra megin, þar eru nokkrar random myndir og nokkrar frá köben
Enjoy


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 23:32:15 / gisli

Hlutir sem eg sakna frá því ég var polli...

... Að geta legið í gólfinu án þess að vera álitinn stórskrítinn

... Að geta haft gaman af tví ad hlaupa um med hendurnar út í loftid

... Að geta sagt " kemuru ad leika?"

... Að hafa gaman af tví ad benda á fólk og segja "bang bang"

... Að þurfa bara að fara að grenja og fá þá allt sem ég vildi

... Að vita ekki hvað áhyggjur eru

... Að leika mér í Playmo og Lego

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 19:57:24 / gisli

IKEA fór illa með mig

Ég var að spjalla við svenna á msn áðan, hann spurði mig hvort ég ætlaði ekki að fara að blogga bráðlega því honum vantaði eitthvað að lesa á netinu. Ég sagði honum, í fávisku minni, að ég hefði ekkert til að blogga um. Lítið vissi ég að þegar ég byrjaði að setja saman nýja flotta sjónvarpsskápinn minn, nokkrum mínútum seinna, myndi ég verða létt geðveikur og ótrúlega pirraður á hönnunarsnilligáfum IKEA manna og kvenna. Þannig er mál með vexti að sjónvarpið mitt sem hefur þjónað heimilinu af fórnfýsi og tryggð í fjölda ára, eyðilagðist og ég þurfti að fá mér nýtt. Ég á margar minningar með gamla sjónvarpið beint fyrir framan mig, margar góðar, margar ekki svo góðar. Ein mín sterkasta minning er þegar ég fékk fáránlegustu martraðir sem sögur fara af, en þær fékk ég eftir að ég spilaði commander & conqure á nintendo 64. Mig dreymdi sem sagt að ég væri einn af litlu hermönnunum sem berjast uppá líf og dauða og geta aðeins treyst á miskun misvitra tölvuleikjaspilara.

En jæja, aftur af sjónvarpsskápnum. Ég keypti sem sagt sjónvarp af mána sem er töluvert stærra heldur en það gamla svo ég þurfti að endurhugsa staðsetningu á sjónvarpinu. Ég komst siðar að þeirri niðurstöðu að ég þyrfti að splæsa í sjónvarpsskáp undir nýja fallega sjónvarpið mitt. Ég fór þess vegna á stúana í þeirri von að finna fallegan og hentugan skáp sem kostaði ekki of mikið.  Það fann ég svo í ikea, svona líka roslaega fallegur :D

 

Ég, með mína óendanlegu smíðahæfileika, hófst handa við að setja ferlíkið saman og það gekk líka svona glimrandi vel.  Þegar ég var buinn að vera í rúmlega tvo tíma að koma þessu saman þá átti ég bara skúffuna fallegu eftir og það vildi ekki betur en svo að mér tókst að setja hana öfugt saman.... já, ég veit.  Maður á ekki að geta klikkað á IKEA hönnun en ég er bara ekki sammála, ég var búinn að vera einbiettur og ákveðinn að fara varlega í gegnum öll skrefin fram að þessu í bæklingnum fallega en allt kom fyrir ekkert.  Ein lítil mistök og fallegi sjónvarpsskápurinn minn er skúffulaus.... Ég tók nokkrar myndir til að sýna ykkur afrek mitt en þær eru ekkert rosalega bjartar en það verður af hafa það.

 

Þetta er sem sagt skápurinn eins vel settur saman og mér tókst að gera hann... með varahlutunum vel staðsettum þar sem skúffan ætti að vera.

 

 

Þetta er skúffan sem mér tókst að gera vitlaust... og belive me... ÉG VEIT HVERSU AUGLJÓST ÞAÐ ER AÐ ÞETTA ER VITLAUST...

 

en mig langar samt ekki að hafa þetta blogg bara neikvætt svo ég ákvað að enda það á mynd sem ég tók af mesta vandræðagemlingi Vesturbæjarskóla sem er samt sem áður mjög mikið krútt.  Hann heitir Magnús og þessi mynd er tekin á Öskudaginn en hann var star wars kall sem vildi endilega fá að prufa mexicana hattinn minn( ég var sem sagt risa mexicani :D )

Ég er alveg handviss um að með þessari mynd takist mér að þerra tárin hjá dyggum lesendum mínum, sem vafalaust gráta óheppni mína og leiðindi þegar kemur að Sjónvarpsskápnum, með þessari mynd af litla vandræðagemlinginum honum Magnúsi.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 21:37:21 / gisli

Ég trúi á þetta..... hann er minn Guð

 

 

 

ef ég gæti þetta, þá myndi ég bara almenn hætta að borga fyrir hluti, ég myndi bara beatboxa eitthvað rugl og fá hlutina frítt... no questions asked

 

p.s. ég veit að þetta er ekkert nytt stöff... þetta er bara of gott til að geta kallast eitthvað gamalt


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 00:14:57 / gisli

Brúðguminn

Það gerist ekki oft en gerist þó að ég fer á íslenskar bíómyndir í bíó. Í þetta skiptið var það vinafólk fjölskyldunngar sem var gott að gefa okkur boðsmiða á frumsýningu nýjustu myndar baltasars, Brúðguman. Eins sjaldan og það gerist að ég fari á íslenskar bíómyndir í bíó þá gerist það ennþá sjaldnar að ég sé jafn hrifinn af þeim. Ég ætla ekkert að spara mig og er þess vegna ekkert hræddur við að segja að brúðguminn er ein besta íslenska bíómynd seinni ára....

Hún er mjög skemmtileg, hress og öðruvísi, það var reyndar eitt sem heillaði mig algjörlega uppúr skónum og það var tónlistin í myndinni. KK og Lay low sjá um tónlistina og hún var mögnuð. Ég mæli því eindregið með því að fólk skelli sér í bíó á Bruðguman.... sérstaklega ef þú ert á annað borð að hugsa um að fara í bíó en ætlaðir að fara á myndir eins og National Treasure eða Golden compass.

Ég fékk hins vegar óskemmtilegt sms rétt þegar myndin var að hefjast sem sagði mér að mikill snillingur að nafni Rikki Chan hafði fallið frá í morgun. Hvort sem þetta blogg er rétti staðurinn eða ekki þá langaði einfaldlega að votta virðingu mína og innilega samúð til fjölskyldu hans. Það er leiðinlegt að hugsa til þess að meistari Rikki verði ekki lengur í kringlunni, léttur í lund eins og alltaf, að matreiða ofaní landsmenn. Hann hefur staðið vaktinar þar alla daga frá því að ég byrjaði í kringlunni og aldrei leið sá dagur að hamingjan skein ekki af honum, sem smitaði svo sannarlega út frá sér. Það er því mikill missir fyrir íslenskt samfélag að missa vin eins og Rikka.

Kvöldið í kvöld var því mjög blendnar tilfinningar yfir góðri bíómynd og vini sem féll frá.

Hvíldu í friði Rikki


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 15:36:00 / gisli

Bubbi, Bubbi, Bubbi..... úff

Síðastliðið laugardagskvöld var dóra svo góð að bjóða mér á Stórtónleika í laugardalshöllinni, þar stóð Bubbi nokkur morthens fyrir tónleikum ásamt Stórsveit Reykjavíkur. Ekki amaleg blanda ef maður hugsar ekki um það.... Kongurinn og stórsveit, það veit bara á eitt... STÓRkostlega skemmtun.. eða hvað?

Ég hef gengið öfganna á milli þegar það kemur að Bubba og hef sjaldan haldið aftur af skoðunum mínum á honum sem personu þar sem ég tel hann vera einn mesta hræsnara íslandssögunnar og væri best geymdur einhverstaðar á stofnun þar sem hann mætti lesa yfir einhverjum sem fengi borgað fyrir það. Tónlistina hans hef ég hins vegar verið í meiri vandræðum með því mér finnst lang flest af því sem hann gerir vera sama lagið aftur og aftur... nema einstaka lög sem ég fýla frekar vel, gegn minni betri vitund.

Þegar Dóra hringdi í mig og bauð mér á tónleikana var ég ekki lengi að segja já því ég hef alltaf mjög gaman af því að fara á tónleika og fá að upplifa þá sjálfur frekar en að hlusta á tónlistina á geisladisk.. það verður bara að viðurkennast að að fara á tónleika er skemmtilegra. Stórsveit Reykjavíkur vissi ég að væri mjög flott band og þeim tókst bara að sannfæra mig á þeirri skoðun minni á laugardagskvöldið því þeir voru eina ljósið sem skein í öllu ljósashowinu.

Mér skilst að hljómsveitarstjóri Stórsveitarinnar hafi útsett lög Bubba fyrir tónleikana og tókst að mínu mati ágætlega upp svona fyrir utan eitt og eitt lag. Það sem hins vegar varð vini mínum, honum Bubba, að falli og það löngu löngu falli, var lagavalið. Hann byrjaði á það sem ég get aðeins gert ráð fyrir að séu hans allra rólegustu lög, þannig að fyrsta hálftíman á tónleikunum beið maður einfaldlega eftir að einhver klúðraði eða eitthvað til að fá smá fútt í þetta. Það er ekki eins og Bubbi sé góður söngvari og hvað hefur hann ef hann hefur ekki fjörið og kassagítarinn? Skínandi skalla og hálf spastískar danshreyfingar.(ekki það að ég dansi betur, en come on... þú bauðst 3000 manns að koma og horfa á þig) Þegar það var liðið nokkuð á tónleikana voru buin að koma svona 2-3 fjörug lög en alltaf tók hann eitthvað rólegt og gott inná milli svona til að sjá til þess að maður væri ekkert alltof hress. Svo ákvað Kongurinn að bjóða Konginum senior að koma og syngja með sér, honum Ragga Bjarna. Það er svo sem allt gott og blessað með það enda raggi bjarna hin besti skemmtikraftur og lítið slæmt um hann að segja. Hver sá sem tók hins vegar þá ákvörðun að láta hann syngja MY WAY var bara ekki alveg með á nótunum... Undir hvaða kringumstæðum á My Way heima á bubba tónleikum? ég sé það bara engan vegin...Ekki misskilja mig, því ég hef ekkert á móti My Way en ef þú ert ekki Sinatra þá áttu ekki að syngja það á tónleikum, það er ekki flóknara en það. Næsti gestur á svið var Garðar nokkur Cortes(yngri auðvitað;) og ég vissi það reyndar fyrirfram að hann myndi syngja þarna en það kom mér samt á óvart því enn og aftur... Hvurn djöfulinn var hann að gera á Bubba tónleikum? Wannabe Rokkarinn að bjóða óperupjakknum uppí dans? Það er eins og ég myndi bjóða Ingibjörgu sólrúnu í afmælið mitt.

Cortes tók svo ekki fjörugra lag en svo að ég beið og beið og beið og beið spenntur eftir að það væri búið svo Bubbi kæmi aftur á sviðið... ég hefði þá allavega eitthvað til að glotta yfir :D Það gladdi mig nefnilega frekar mikið hversu fáránlegur Kongurinn leit út í þessum svarthvítu mörgæsafötum sínum... hann leit út eins og lík sem var verið að nota sem strengjabrúðu.

Það var svo ekki fyrr en Cortes yfirgaf sviðið og öll faðmlög voru liðin sem Bubbi virtist vera tilbuinn að sýna svolítið töffaran í sér og fór að spila einhver fjörugri lög. Það var sem sagt svona 1/5 af tónleikunum sem vottaði af fjöri og toffaraskanum sem Bubbi er frægur og elskaður fyrir. Það sem kom mér samt hvað mest á óvart var að maðurinn var klappaður upp... og já takk fyrir, ekki einu sinni heldur tvisvar... ég hélt ég yrði ekki eldri. Það besta við tónleikana leit hins vegar dagsinns ljós í fyrra uppklappinu þegar hann tók Rómeo og Júlía sem kom án nokkurs vafa laaang best út í útsetningu Stórsveitarinnar.

Svo þið vitið af hverju ég ákvað að leyfa ykkur að njóta þessu fallegu orða hérna í dag þá las ég Morgunblaðið í morgun og hreinlega blöskraði þegar einhver yngismær ákvað að verðlauna stærstu mistök Bubba á sinum alltof langa ferli með 4 stjörnum.. ég lifi eginlega ennþá í voninni að hún hafi gengið út frá því að gefnar væru 10 stjörnur fyrir fullkomnun.

 

Mig langar samt að enda færsluna á jákvæðu nótunum því ég skemmti mér vægast sagt konunglega núna um jólahátíðina og mig langar einfaldlega að þakka ykkur fyrir allar góðu stundirnar... ég man ekki eftir öðru eins sukk tímabili :D

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 00:39:42 / gisli

Frá mér til þín...

Ég sit við tölvuna eftir eina rólegustu Þorláksmessu sem ég man eftir og þar af leiðandi eina þá bestu.  Ég byrjaði daginn á mjög klassískri skötu sem stóð vel fyrir sínu með sinni einstaklega vondu lykt sem elti mig grunsamlega lengi.  Það er samt eitthvað við skötuna sem heillar, það er ekki bragðið enda smakka ég hana aldrei, en það er þó einhver ákveðin stemming að setjast niður með fjölskyldunni og svona hálfpartinn fá smá forsmekk af jólunum.  Þetta er hefð sem hefur verið frá því ég man eftir mér í fjölskyldunni minni og það er frekar gaman að rifja upp tímana þegar ég og frændi minn fórum niður í þvottahús til að sækja þvottaklemmur á nefið því okkur fannst lyktin svo vond.  Það er eginlega ástæðan fyrir því að ég elska skötu í dag, og aftur, nei það er ekki bragðið sem ég elska. 

Ætli það sé ekki það sama sem á við um jólin.  Það er þessi hátíðarbragur og væntumþyggja sem liggur í loftinu.  Þegar fólk er komið yfir jólastressið og búið að gíra sig niður um svona 4 gíra þá myndast þetta andrúmsloft sem við öll elskum.  Það er langþráð ró sem færist yfir reykjavík og ef eitthvað skildi draga mann út úr húsi þá er það einfaldlega til að hitta fólkið sem maður elskar.  Ef ég fengi svo einhverju ráðið þá myndi ég alltaf panta veður eins og í kvöld yfir öll jólin og áramótin.  Máninn skýn skært í gegnum nokkur ský á himni og stjörnurnar lauma sér við og við fram á sjónarsviðið.  Smá snjór til að lýsa upp allra dimmustu horn og kuldinn til að halda fólki þétt saman.  Ég veit satt best að segja ekki hvort það sé til betra vetrarveður.

Mig langar svo að nota tækifærið og óska þér og þínum nánustu gleðilegra jóla og ég vona að þú njótir þeirra til hins ýtrasta.  Ég vona að þú getir tekið því rólega yfir hátíðarnar með fólkinu sem þú elskar, borðað góðan mat  og fáir flotta pakka :D (sem hlítur að vera markmið hjá öllum, þó svo að maður ráði lítið yfir því)  Það er klárlega það sem ég ætla mér að gera og ég vona því að ég hitti þig einhverntíman yfir jólahátíðina.

Mig langar svo að þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem ég hef átt með þér yfir árið sem er að líða og ég vona að þær verði jafnvel enn fleiri á árunum sem koma. 

Takk fyrir mig 

Jólakveðja

Gísli 


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 15:29:02 / gisli

Birgitta of gul?

Það var frétt í morgunblaðinu um daginn um einhvern óprúttan bloggara sem var ósáttur við húðlit Birgittu Haukdal í laugardagslaugunum síðastliðin laugardag.  Þessi óprúttni bloggari var víst eithvað ósáttur við að hún skyldi nota brúnkukrem sem gerði hana svona gula.  Birgitta frétti af þessu bloggi og ákvað að senda kauða jólakort.  Þetta finnst mér vera alröng viðbrögð hjá þessari góðu konu að verðlauna svona framkomu með jólakorti.  Ég hef því ákveðið að lýsa yfir ást minni og hrifningu á Birgittu Haukdal í þeirri von að ég fái jólakort fyrir vikið.  Það væri nu ekki til of mikils ætlast að fá eitt lítð jólakort fyrir svo stór orð, sérstaklega miðað við hversu lauslát hún birgitta er greinilega í jólakortunum í ár. 

Ég ætla því næstu daga að bíða spenntur við bréfalúguna milli 12 og 3 í þeirri von að inn komi  fallegt jólakort með jólakveðju frá minni heittelskuðu Birgittu.

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 19:51:52 / gisli

Hvernig er þetta hægt? .... varúð.... mjööög viðbjóðslegt

Myndbandið virðist ekki virka... skoðið þetta hérna

www.youtube.com/watch?v=XG0YrDMeVvI

Hvenær ætlar heimurinn að átta sig á mannvonskunni og ógeðinu... ég á í alvörunni ekki orð eftir að hafa horft á þetta....

 

p.s. fyrir ykkur sem þetta fór of illa í þá mæli ég með því að þið klikkið á play hérna tveimur færslum neðar.... ég ábyrgist bros, jafnvel eftir þetta.... 


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 00:36:07 / gisli

If elected President

of this small comunity of ours, I wil determine, once in for all. How far we can go wihout being gay

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 18:25:07 / gisli

Þegar ég eignast barn...

Vona ég að það hlægji svona mikið og skemmtilega ...

 

og dansi svona...

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Heimsóknir
Í dag:  15  Alls: 64534
Textabox
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti